Konungsveldi Gemlinganna!

GAMAN AÐ SEGJA FRÁ ÞVÍ AÐ.......

föstudagur, maí 21, 2004

Í framhaldi af síðustu færslu kemur hugmynd sem ég og nokkrir gammar vorum að ræða..

Árlega eyðir ríkið stórri upphæð í forvarnir gegn reykingum með misjöfnum árangri.
Mér hefur sýnst að besta forvörnin gegn sígarettum er svimandi hátt verð (þess vegna hætti ég að reykja)

Hvernig væri að selja sígarettur aðeins í kartonum?

Það skiptir reykingamenn ekki svo miklu máli hvort þeir kaupi 3 eða 10 pakka en 13 ára unglingur hugsar sig tvisvar um þegar hann þarf að kaupa 10 pakka í einu.

Nú mundu margir segja "en þá fara menn bara að kaupa karton og selja einn og einn pakka á svörtu"
Það verða til menn sem nenna að harka inn fáeinar krónur á því ´"díla" með sígarettupakka.
Það eru til menn sem nenna að díla með landa þrátt fyrir að það sé bannað.
En þegar allt kemur til alls þá held ég að færri unglingar mundu byrja að reykja.

Maður sem fær krabbamein af völdum reykinga kostar þjóðfélagið mikinn pening.
Fyrir utan kvalir, sorg og önnur erfiði sem lagt er á sjúklinginn og aðstandendur hanns.

Þess vegna á að gera allt til að sporna við að fólk byrði að reykja að þetta fynnst mér ágætis hugmynd.... en hvað fynnst þér????

3 Comments:

Blogger Ingjaldsræfillinn said...

Akkilesarhællinn á þessu er auðvitað sá að þetta held ég að rettufyrirtækin myndu ekki taka þessu með opnum örmum og jafnvel neita að framleiða lengur carton af sígarettum. Það verður bara til SIXPACK og Eighteration pack en engir kartonar?

Nema auðvitað Hamraborgargyðingarnir taki sig til og búi til HEIMATILBÚIN KARTON til að græða smá.

12:32 PM  
Blogger ógæfugrey said...

ég styð þetta frumvarp

6:39 PM  
Blogger Kóngur Niðurgangur said...

Ég styð þetta einshugar og finnst þetta ein snjallasta úrlausn forvarnarmála sem að ég hef séð!

7:04 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home