Hóhó gleðileg jól og skólabyrjun.
Fyrr í dag fékk ég skilaboð á Sýndarspjallinu mínu eða MSN. Spurt var stórt: ,,Á ekki að útdeila visku og speki á gemling?" Verkefnið er erfitt en lítið annað hægt að gera en að taka við áskoruninni og ljúka við heilaígræðsluna á gemling svo hann geti tekið til starfa á ný.
Viska. Hvað er viska? Er það þekking? Af hverju eru þá ekki viskustykki kölluð þekkingarstykki? Hvernig fær maður þekkingu úr viskustykki? Hey ég lærði það fljótt að ég get þurrkað diska með því en viskuna rakst ég ei á. Ætti þá ekki heldur að kalla viskustykki, diskastykki?
Speki. Hvað er speki? Er speki það sama og viska? Spekistykki.. nei passar ekki. Visakort er næstum einsog Viskukort. Ég fékk jólakort í fyrra sem að kom prumpuhljóð þegar að þú opnar það. Var þetta viska?
Á föstudaginn sá ég ID*L. Ég get staðfest það samkvæmt áreiðanlegum heimildum að Helgi Þór nokkur sé með sílíkon magavöðva. Sáuði pulsurnar? Hann stóð sig nú samt vel drengurinn og alltaf gaman að hafa fulltrúa Ástralíu í 10 manna úrslitunum. Af hverju er þetta kallað vetrargarðurinn? Þið hafið öll komið í Smáralindina, hafið þið séð einhvað þarna sem tengist vetri? Hvað þá garði? Þetta er kannski svona einsog með Hjónagarðana í Háskólanum.. fyrir utan það að þar búa hjón.
Burnout er besti leikur í heimi. Singstar líka vá hvað það var gaman um helgina. HEY MÉR DATT VISKA Í HUG!: Aldrei, aldrei, aldrei blanda saman koníaki, allskonar líkjörum, gini, vodka o.m.fl. og staupa það. Fer eigi vel í maga.
Bæ. Ingjaldsræfillinn.
